Tillaga að samstarfi um rekstur Kolaportsins


Skuldleysisvottorð

Frá skattinum og lífeyrissjóðum má nálgast hér.

Útboðsgögn

Þarfagreining og annað efni sem borgin lét gera fyrir útboðið má nálgast hér.

Advanced

Add your pricing strategy. Be sure to include important details like value, length of service, and why it’s unique.

Inngangur

Við viljum búa til menningar- og félagsmiðstöð. Stað í miðbæ borgarinnar þar sem Reykvíkingar, og þeir sem heimsækja borgina, geta upplifað fjölbreytta menningu á viðráðanlegu verði.

Við trúum því að Kolaportið geti orðið að þessum stað, og við trúum því að við getum búið hann til.

En, og þetta er stórt en, við sjáum ekki leið til þess að þetta verði gert án aðkomu borgarinnar.

Í þarfagreiningu sem borgin lét vinna og fylgja með útboðsgögnum eru tekin dæmi frá öðrum borgum þar sem þetta hefur tekist vel.

Þar sem hafa verið búnir til samverustaðir þar sem borgarbúar flykkjast að. Staðir sem eru stolt borgarinnar og hafa aðdráttarafl.

Það sem ekki kemur fram í þessari annars góðu þarfagreiningu er að allir staðirnir sem eru teknir sem dæmi hafa verið mjög verulega niðurgreiddir. Annaðhvort (eða bæði) í uppbyggingu eða rekstri.

Eftir mikla yfirlegu þá sjáum við ekki að við getum búið til þetta verkefni ein. Við erum ágætlega stöndug óhagnaðardrifin sjálfseignarstofnun, sem byggir að miklu leyti á sjálfboðavinnu.

Við höfum engan fjárhagslegan hvata til að fara í þetta verkefni. 

En við höfum mun mikilvægari hvata. 

Við viljum búa til betri borg, og við trúum því að menningarstarfssemi sé lykillinn að því.

Við gerum okkur grein fyrir því að með þessu tilboði erum við ekki að bjóða það sem borgin setur sem skilyrði.

En við viljum samt sem áður leggja fram okkar tilboð. Eða kannski er réttara tala um tillögu að samstarfi. Samstarf milli borgarinnar og okkar um að búa til samverustað þar sem fólk fær að upplifa list og menningu, taka þátt í hringrásarhagkerfinu, kaupa beint frá býli, sjá nýjar hljómsveitir, tilraunaleikhús, hitta listafólk, og kaupa af þeim verk.

Við viljum að borgin komi með okkur í þetta tilraunaverkefni í eitt ár, þar sem við bjóðumst til að reka húsnæðið, fjárfesta í búnaði, prófa hugmyndir. Og á móti biðjum við borgina um að styrkja verkefnið með því sem samsvarar leigukostnaði.

Eftir fyrsta árið, munum við svo fara yfir verkefnið saman og ef vel hefur tekist og það er afgangur af rekstri þá munum við láta hann renna allan aftur til borgarinnar og endursemja um leigu sem reksturinn stendur undir.